Nordjobb
(1811154)
Íslandsdeild Norðurlandaráðs
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
07.12.2018 | 3. fundur Íslandsdeildar Norðurlandaráðs | Nordjobb Valdís Ösp Árnadóttir, starfsmaður upplýsingaþjónustu Halló Norðurlanda, var fulltrúi Norræna félagsins á fundinum í fjarveru Ásdísar Evu Hannesdóttur framkvæmdastjóra og Boga Ágústsson formanns Norræna félagsins. Valdís Ösp sagði frá Nordjobb-verkefninu og þróun þess síðustu árin en fjöldi þátttakenda frá Íslandi hefur dregist saman af ýmsum ástæðum. Ein ástæðan virðist vera að kunnátta Íslendinga í skandinavískum málum er minni en áður var. Íslandsdeild ákvað að tillögu Kolbeins Óttarssonar Proppé að fela ritara að safna saman gögnum um stöðu skandinavísku málanna á Íslandi og fá gesti á fund deildarinnar til að segja frá stöðu dönskunnar í menntakerfinu. Stuðningur við Nordjobb-verkefnið hefur komið frá Norrænu ráðherranefndinni, velferðarráðuneytinu og Letterstedska föreningen. Enginn styrkur hefur fengist frá velferðarráðuneytinu frá árinu 2016. Íslandsdeild Norðurlandaráð ákvað að skoða það mál betur. |
23.11.2018 | Fundur Íslandsdeild Norðurlandaráðs | Nordjobb |